37. aðalfundur LS

Undirbúningur aðalfundar er nú að komast á lokastig.  Svæðisfélögin hafa flest fundað, samþykkt ályktanir, kosið í stjórn og fulltrúa á aðalfund Landssambands smábátaeigenda.  
Aðalfundur LS verður settur nk. fimmtudag 14. október kl 13:00.  Fundurinn verður með hefðbundnum hætti, haldinn á Grand Hótel.
LS_adalfundur_20121_auglysing.jpg


Fundurinn verður að venju opinn öllum félagsmönnum LS og eru menn hvattir til að skrá sig og fjölmenna til fundar.
Kjörnir fulltrúar eru 36 og skiptast á svæðisfélögin 15 eftir fjölda báta hvers og eins.  Öllum félögunum er þó tryggður einn fulltrúi.  Auk þessa er stjórn félagsins og framkvæmdastjóri með atkvæðisrétt á fundinum.
Bátar í eigu félagsmanna eru 790, sem er fjölgun um 90 frá í fyrra.  Stærsta félagið er Snæfell þar sem bátarnir eru 108. 
211009 logo_LS á vef.jpg