Grunnur ehf með mestu krókaflamarkshlutdeildina

Á aðalfundi LS vakti Örn Pálsson framkvæmdastjóri athygli á samþjöppun í krókaaflamarkinu.  Ekkert lát væri á henni og væri nú svo komið að 50 stærstu bátar í krókaaflamarkinu væru með 91% heildarúthlutunar.pdf þorskígilda í kerfinu.  Hlutdeild þeirra hefði vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum.

Jafnframt kom fram að 202 bátar.pdf hefðu fengið úthlutað meiru en 10 þorskígildum, þannig að 152 bátar skipta með sér 9% hennar.
Fjölmargir eigendur krókaaflamarksbáta hefðu kosið að bæta við sig veiðiheimildum, en því miður ekki haft árangur sem erfiði.  Nánast útilokað að keppa við stórar útgerðir sem jafnframt hafa vinnslu á bakvið sig. 
Grunnur ehf er með mestu krókaaflamarkshlutdeildina 4,66% en hámarkið er 5%.  Tíu stærstu eru með 38,6%.  
Þá væru fimm útgerðir komnar upp í hámarkið í þorski – 4% og fimm efstu í ýsu væru með 24,6%, en þar er hámarkið 5%.
Screenshot 2021-11-04 at 09.31.40.png