Umhverfisívilnun – vantar ýsu í línuívilnun

Þau undur og stórmerki gerðust hjá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að viðmiðun frá síðasta fiskveiðiári fyrir línuívilnun í ýsu var skert um 41% – 289 tonn og í steinbít um 74 tonn.  Á síðasta fiskveiðiári voru ætluð 701 tonn til línuívilnunar í ýsu, aðeins átta tonn nýttust ekki. Sama var uppi á teningnum í steinbít nema þar var ekkert skilið eftir af 251 tonna viðmiðun.
Fastlega var því búist við að tekið yrði tillit til þessa þegar viðmiðun var ákveðin í reglugerð fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.  Það var hins vegar ekki gert og því nauðsynlegt að ráðherra láti til sín taka og tryggi línuívilnun í öllum tegundum til loka fiskveiðiársins.
Árinu er skipt í fjögur tímabil.  
I. September – nóvember.  
II. Desember – febrúar.  
III. Mars – maí. 
IV. Júní – ágúst
Taflan sýnir línuívilnun í ýsu fiskveiðiárin 2020/2021 og 2021/2022.

Tímabil

2020/2021

2021/2022

Viðmiðun

Afli

Viðmiðun

Afli*

I.

255 tonn

386 tonn

150 tonn

143 tonn

II.

224 tonn

171 tonn

132 tonn

0 tonn

III.

130 tonn

81 tonn

  76 tonn

0 tonn

IV.

92 tonn

55 tonn

  54 tonn

0 tonn

Samtals

701 tonn

693 tonn

412 tonn

143 tonn

* staðan 12. nóvember 2021.
Reglugerð um línuívilnun 2020/2021 var breytt alls sjö sinnum.  Í nóvember 2020 var viðmiðun í þorski lækkuð úr 1.200 tonnum í 1.050 tonn.  LS mótmælti ákvörðuninni og hafði árangur sem erfiði.  Viðmiðun var hækkuð í þrepum í 1.386 tonn og tímabilum breytt þannig að ekki kæmi til stöðvunar, að undanskyldu 20. maí til 3. júní.
Í bréfum LS til ráðherra var bent á hversu mjög línuívilnun hefði verið skert og er taflan hér óræk sönnun þess.

Viðmið

2018/2019

2019/2020

2020/2021

2021/2022

Þorskur

3.000 tonn

2.000 tonn

1.386 tonn

1.400 tonn

Ýsa

1.000 tonn

849 tonn

701 tonn

412 tonn

Steinb.

700 tonn

501 tonn

251 tonn

177 tonn

Á aðalfundi LS hefur verið mikil og góð samstaða að efla línuívilnun.  Hún gildi fyrir alla dagróðrabáta minni en 30 búttótonn sem eru styttri en 12 metrar.  Ívilnun verði á bilinu 10 – 30%.   Jafnframt ályktaði fundurinn að framvegis myndi línuívilnun nefnd umhverfisívilnun.
211112 logo_LS á vef.jpg