Samanburður á fyrstu þremur ársfjórðungum áranna 2021 og 2020 sýnir að 15% aukning hefur orðið í útflutningi á þorski sem gefur mestu verðmætin, roðflett flök í bitum. Í lok september nam magnið rúmum 13.500 tonnum að verðmæti 21 milljarð. Þó verðið hafi aðeins gefið eftir í evrum talið er það smáræði á móti magn og verðmætaaukningu.
Alls nam útflutningur á ferskum þorski í flökum og bitum 34,4 milljörðum sem er 5% umfram sama tíma á árinu 2020.
Minna hefur verið flutt út af ferskum óunnum þorski í ár en í fyrra. Samdrátturinn er 19% í magni talið rúm 2.200 tonn. Verðmætin minnkuðu hins vegar ekki í takt við það eða um 7% þar sem útflutningsverð hækkaði um 14%, var að meðaltali 502 kr/kg á tímabilinu janúar – september. Met var slegið nú í september þegar 617 krónur fengust fyrir hvert kíló.
Samanlagt útflutningsverðmæti á ferskum þorski, heilum, í flökum og bitum nam 39,2 milljörðum.
Frakkar voru stærstu kaupendur okkar á unnum þorski með 54% af útflutningsverðmætinu. Bretar keyptu mest þjóða af óunnum þorski eða 35% alls magnsins.
Unnið upp úr tölum frá Hagstofun Íslands