Fram kom í frétt gærdagsins „Ferskur þorskur skilar 39,2 milljörðum að á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs hefði útflutningur á óunnum heilum þorski dregist saman um 19% eða um 2.200 tonn miðað við sama tímabil á árinu 2020.
Við þær upplýsingar er vert að bæta við fjórum öðrum tegundum, ýsu, ufsa, karfa og steinbít. Þegar allar tegundirnar fimm eru lagðar saman hefur útflutningur aukist um 7%. Langmest hefur verið selt af ferskum heilum karfa alls 12.439 tonn sem jafngildir 18% aukningu milli ára. Í hinum tegundunum þrem er sömu sögu að segja. Útflutningur á heilum ufsa jókst um 21%, steinbít um 19% og af ferskri heilli ýsu jókst magnið um 15%.
Þó mörgum svíði að ekki sé allur fiskur unninn hér á landi þá er samkeppnin um aflann af hinu góða og tryggir betur en nokkuð annað hámarksverð. Gagnrýni lítilla fiskverkenda á þó fullan rétt á sér að ekki fari nema lítill hluti þessa magns á markað og þeir hafi því ekki möguleika á að bjóða í. Heildarmagn þeirra fimm tegunda sem skoðaðar voru nemur 41.575 tonn sem skilaði 13,2 milljörðum í útflutningsverðmæti.
Eins og fram hefur komið var hlutur Breta í þorski 35%, auk þess keyptu þeir 88% af allri ýsu. Tveir þriðju alls karfans fór til Þýskalands. Frakkar voru drýgstir í ufsa – 35% – og steinbít þar sem hlutur þeirra var 64%.