Fyrirtækjakönnun – hvernig er staðan?

LS hefur borist erindi frá Byggðastofnun og landshlutasamtökunum um að vekja athygli félagsmanna á fyrirtækjakönnun sem nú fer fram.  Markmiðið er að kanna hver staða fyrirtækja er til að geta stutt þau betur hvar sem þau eru á landinu.
Í könnuninni er spurt um hvort fyrirhugað sé að bæta við fólki eða fækka og hvort það vanti menntað starfsfólk. Hvort fyrirtæki ætli að fjárfesta eða losa sig við framleiðslutæki og -tól. Þá er spurt um nokkur atriði er lýsa tegund og eðli rekstursins. Að lokum er spurt út í nokkur atriði er tengjast stöðu eftirspurnar hjá fyrirtækjunum, stuðningsgreinar og þekkingu þeirra á stoðkerfinu.
Svör og niðurstöður könnunarinnar verða nýtt af öllum landshlutasamtökum, atvinnuþróunarfélögum og Byggðastofnun. Sérstök athygli er vakin á því að jafnvel þó ekki sé verið að safna persónueinkennum (kennitölum eða ip-tölum) þá kann að vera hægt vegna tilviljana, þó litlar líkur séu á, að rekja stöku svar til þátttakanda ef borin eru saman svör tveggja eða fleiri spurninga t.d. ef aðili er eina fyrirtækið í sjávarútvegi í viðkomandi sveitarfélagi. Slíkt verður þó aldrei nýtt á nokkurn hátt eða birt í neinni úrvinnslu á könnuninni.
Nánari upplýsingar veitir Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) í síma 433 2314 eða 695 9907.
Ef þú samþykkir að taka þátt í þessari könnun ýttu þá á hlekkinn hér fyrir neðan.
Sjá nánar:
Screenshot 2022-01-28 at 12.09.03.png