Snæfell lýsir yfir fullum stuðningi við frumvarpið

logo snæfell copy 4.jpg

Stuðningsyfirlýsing Smábátafélagsins Snæfells 
við frumvarp Lilju Rafneyjar
Smábátafélagið Snæfell, Snæfellsnesi lýsir yfir fullum stuðningi við frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttir þingmanns VG um að tryggja hverjum bát 48 daga til strandveiða ár hvert til framtíðar.


Frumvarpið stuðlar að aukinni sátt um sjávarútveginn, eflir byggð í landinu og tekur af þá óvissu sem menn hafa búið við í strandveiðikerfinu hingað til.

Grundarfjörður 3. febrúar 2022
F.h. Smábátafélagsins Snæfells
Stjórn Snæfells