Frosin grásleppa

Árið 2013 er fyrsta árið sem hægt var að selja í einhverju magni frosna grásleppu til Kína.  Þar til á síðasta ári hafði öll grásleppa skilað sér í land, enda skýrt kveðið á um það í reglugerð.  Vegna markaðsaðstæðna samþykkti ráðuneytið beiðni LS fyrir síðustu vertíð um undanþágu frá ákvæðinu sem gilti aðeins á síðustu vertíð.  Matvælaráðuneytið hefur nú sams konar beiðni frá LS til skoðunar.  Reiknað er með svari áður en vertíðin hefst þann 20.  mars.
Í ár ber svo við að Kínverjar sem keypt hafa frosna grásleppu hafa ekki sýnt áhuga á kaupum.  Mest af því sem flutt var til þeirra á síðustu tveimur árum er enn í frystigeymslum og bíður þess að Covid-19 verði komið á það stig að dreifing verið heimiluð.  
Staðan sem upp er komin er mikið áfall fyrir útgerðir grásleppubáta.  Lengst af hefur verð verið ásættanlegt og bjartsýni ríkt meðal sjómanna stöðugan markað.   
Á síðasta ári voru eittþúsund tonn af frosinni grásleppu flutt á markað í Kína og nam útflutningsverðmætið aðeins 94 milljónum 93 Kr/kg.  Tveimur árum fyrr árið 2019 voru sambærilegar tölur 2.372 tonn, 603 milljónir og 254 Kr/kg.   
Myndin hér að neðan sýnir hver þróunin hefur verið á tímabilinu 2013 – 2021.
Screenshot 2022-03-16 at 15.17.03.png