Grásleppa – verð að hækka

Átta bátar hófu grásleppuveiðar á fyrsta degi vertíðarinnar þann 20. mars.  Eins og fram hefur komið gildir grásleppuleyfið í 25 samfelda daga og lýkur því veiðum þeirra í dag 13. apríl.  
LS hefur tekið saman upplýsingar um stöðu veiðanna og borið saman við vertíðina 2021.  Samantektin miðast við löndunartölur til og með 12. apríl sl. og 15. apríl 2021 en þá hófst vertíðin 23. mars.

 

2022

2021

Breyting

Afli

886 Tonn

1.580 Tonn

-44%

Á veiðum

75 bátar

108 bátar

-31%

Fjöldi landana

483 landanir

583 landanir

-17%

Landanir

6,4 pr. bát

5,4 pr. bát

19%

Afli pr. löndun

1.835 Kg

2.711 Kg

-32%

Afli pr. leyfisdag

820 Kg

1.294 Kg

-37%

Milli umvitjana

2,24 Dagar

2,09 Dagar

7,2%

Mestur afli á bát

44,2 Tonn

42,1 Tonn

4,8%

Meðaltal á bát

11.817 Kg

14.633 Kg

-19%

Selt á markaði

252 Tonn

288 Tonn

-13%

Verð á markaði

197 Kr/kg

147 Kr/kg

 34%

Lengst af vertíðinni hefur grásleppa í föstum viðskiptum verið seld á 150 Kr/kg, sem er 15% hærra en í fyrra.  
Fyrr í dag bárust hins vegar þau ánægjulegu tíðindi að boðið væri 180 Kr/kg.  Ekki ósennilegt að hækkunina megi rekja til minnkandi framboðs, sem skýrt kemur fram í samantektinni hér að ofan.   Samkeppni um grásleppuna viðist því farin af stað og bíða grásleppusjómenn spenntir eftir hver þróunin verður.