Í sjómannadagsblaði Fréttablaðsins sem út kom þann 11. júní birtist viðtal við Örn Pálsson framkvæmdastjóra LS. Þar er komið víða við m.a. rætt um:
- Strandveiðar og sjálfbærni þeirra.
- Afla, aflaverðmæti og hlutdeild smábáta í helstu tegundum.
- Byggðakvóta og þá skoðun viðmælanda að hann nýtist byggðunum best með veiðum smábáta í dagróðrum og strandveiðum.
- Óréttmæta kröfu um að skylda stýrimann í áhöfn smábáta.