Aflaheimildir auknar um 1 074 tonn

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að bæta 1 074 tonnum við aflaheimildir til strandveiða.  Jafnframt hefur ráðherra komið á þeirri breytingu til hagræðingar fyrir strandveiðisjómenn að Fiskistofa mun sjálfkrafa fella niður strandveiðileyfi þegar veiðar verða stöðvaðar.
Viðbótin er kærkomin þó hún muni ekki að óbreyttu nægja til að veiðar standi til ágústloka.  Afli fór yfir fjögurhundruð tonn á þriðjudag og miðvikudag þessarar viku, en hann hann hefur ekki náð þeim hæðum áður.  Afli vikunnar mun þó ekki slá nein met þar sem fáir voru á sjó í dag vegna veðurs.  
Heildarafli eftir gærdaginn 6. júlí, sem var 37. dagur veiðanna, var kominn í 9.626 tonn sem 695 bátar hafa fært að landi.   Gera má ráð fyrir að enn eigi nokkrir bátar eftir að bætast við þar sem útgefin veiðileyfi eru komin í 714.
Til strandveiða Vestm copy.jpg