Makríllinn gerir vart við sig

Nokkrir smábátar hafa hafið veiðar á makríl.  Eins og svo oft áður þegar þessar veiðar eiga í hlut er veiðin afar misjöfn.  
Fiskistofa hefur birt tilkynningu um að opnað hafi verið fyrir umsóknir úr 4.000 tonna makrílpotti fyrir smábáta.   Úthlutun að hámarki 50 tonn fer fram vikulega og er gjald fyrir hvert kíló er 5,27 krónur.   Skilyrði fyrir úthlutun öðru sinni og síðar er að viðkomandi hafi veitt 50% af því sem hann hafði áður fengið úthlutað.
Á fyrsta virka degi hverrar viku afgreiðir Fiskistofa umsóknir sem bárust vikuna á undan.  Krafa birtist í kjölfarið í heimabanka viðkomandi sem greiða þarf fyrir kl 21 næsta dags og úthlutun framkvæmd degi síðar.