Auðlindin okkar

Athygli er vakin á að vefsíðan audlindinokkar.is hefur verið opnuð.  Þar má finna upplýsingar um gögn sem tengjast verkefninu Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ýtti úr vör í maí með skipan fjögurra starfshópa og samstarfsnefndar um sjávarútvegsstefnu. 
Verkefni hópanna Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.
AO-banner.png