Aðalfundur Strandveiðifélagsins Króks var haldinn á Patreksfirði 14. september sl. Formaður félagsins, Einar Helgason, setti fundinn og skýrði frá helstu tíðindum í starfi félagsins. Hann sagði strandveiðar hafa gengið vel í sumar þrátt fyrir ótímabæra stöðvun þeirra í lok júlí. Einar lagði áherslu á nauðsyn þess að tryggja 48 daga til strandveiða, smábátaeigendur ættu ekki að gefa neinn afslátt af þeirri kröfu.
Í umræðu um skýrslu formanns kom fram þakklæti í hans garð um tölulega greiningu sem hann hefði unnið og birt á Facebókarsíðu sinni.

Fundurinn samþykki að eftirfarandi tillögur yrðu framlag Króks til 38. aðalfundar LS
1. Í ljósi sögunnar. Það hefur aldrei verið betri grásleppugengd vítt og breytt um landið.
Strandveiðifélagið Krókur fer þess á leit við ráðamenn þjóðarinnar að á sjómenn verði hlustað. Félagið ítrekar að óheimilt verði að nota flottroll við veiðar á loðnu,
2. Strandveiðifélagið Krókur fer þess á leit við hstv. matvælaráðherra að hann beiti sér fyrir eftirfarandi breytingum á lögum um stjórn fiskveiða.
2.1. Fiskveiðiár krókaflamarksbáta verði almanaksárið.
Það hefur sýnt sig að tilfærsla áramóta hentar illa fyrir smábátaútgerðina þar sem þann 1. septmber eru margir einyrkjar enn í fullri vinnu.
2.2. Með aflamarki sem flutt er til báts fylgi réttur til að flytja 15% yfir á næsta
fiskveiðiár.
3. Strandveiðifélagið Krókur telur að innan strandveiðikerfisins sé nauðsynlegt að jafna
aðstöðu milli hraðfiskibáta og þeirra sem hæggengari eru. Bendir félagið á að tímamörk hjá strandveiði bátum með lítinn ganghraða verði 18 klst og sé stýrimaður einnig lögskráður séu tímamörk 24 klst.
4. Strandveiðifélagið Krókur beinir því til Fiskistofu að sinna betur lögboðnu eftirliti sínu varðandi eignarhald strandveiðibáta, sbr.: „einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið.
5. Hlutast verði til um að afnema álag á löndunargjald vegna afla sem er undir 1 tonni. (FMS rukkar 3,90 kr af strandveiðbátum, 2,85 kr yfir 1 tonn skv. verðskrá)
Stjórn Strandveiðifélagsins Króks
Einar Helgason formaður
Leiknir Kristjánsson ritari og gjaldkeriHalldór Árnason varaformaður














