Ályktanir 38. aðalfundar LS

Á aðalfundi LS sem haldinn var 20. og 21. október voru alls 70 ályktanir samþykktar.  Þær hafa nú verið teknar saman og flokkaðar í 24 efnisflokka.
IMG_3687.png
Eins og gefur að skilja er í ályktunum fundarins komið inn á flest málefni sem snerta smábátaeigendur.   Strandveiðar, grásleppu, veiðar með flotvörpu, mönnunarmál, línuívilnun, humarveiðar, orkuskipti, samþjöppun og eignarhald, umgengni, vigtun, o. fl.
Aðalfundurinn var vel sóttur og gengu nefndarstörf með miklum ágætum.  
Guðlaugur Birgisson og Guðbjartur Örn Einarsson stýrðu sjávarútvegsnefnd og Andri Viðar Víglundsson og Halldór Ármannsson allsherjarnefnd og kann LS þeim ásamt nefndarmönnum fundarstjóra Guðmundi Páli Jónssyni og fundarritara Magnús Jónssyni miklar þakkir fyrir.