Grásleppuvertíðin 2023 – breyting á reglugerð

Matvælaráðuneytið hefur orðið við beiðni LS um breytingu á reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða.  Með henni verður heimilt á yfirstandandi vertíð að varpa hvelju af grásleppu fyrir borð.   Reglugerðin var undirrituð þann 22. mars og hefur nú verið birt í Stjórnartíðindum.
Í bréfi LS til ráðuneytisins var óskað eftir þessari heimild þar sem markaður fyrir grásleppu í Kína er enn lokaður og hefur í raun verið það frá miðju ári 2020.
Útflutningstölur frosin grásleppa til Kína.

Ártal

Magn

Verðmæti

Verð

Verð

2019

2.372 Tonn

603 milljónir

254 Kr/Kg

2,05 USD/Kg

2020

2.503 Tonn

365 milljónir

146 Kr/Kg

1,18 USD/Kg

2021

1.011 Tonn

94 milljónir

93 Kr/Kg

0,75 USD/Kg

2022

518 Tonn

43 milljónir

84 Kr/Kg

0,63 USD/Kg