Undanfarin ár hefur sú ánægjulega þróun átt sér stað í upphafi grásleppuvertíðar að góð verð hafa fengist á fiskmörkuðum. Stígandi hefur bæði verið í verði og magni.
Á fyrstu 7 dögum yfirstandandi vertíðar, 21. mars – 27. mars, höfðu 41,4 tonn verið seld á fiskmörkuðum af bátum sem hafa leyfi til grásleppuveiða. Meðalverð þessa magns 419 kr/kg, 167 krónum hærra en á sama tíma í fyrra.
|
Magn |
Verð |
2021 |
25,4 Tonn |
222 Kr/Kg |
2022 |
32,5 Tonn |
324 Kr/Kg |
2023 |
41,4 Tonn |
491 Kr/Kg |
Kaupendur á mörkuðum eru að sækjast eftir hrognunum, sem þeir selja fersk á erlenda markaði, þar sem Danir eru helstu kaupendur. Jafnframt er eitthvað um að aðilar hafi fryst hrogn sem ætlað er á aðra markaði.
Nú hafa 34 grásleppubátar virkjað leyfi á móti 32 á sama tíma í fyrra. Aflinn stendur í 46,7 tonnum á móti 75,9 tonnum í fyrra. Afli í hverjum róðri er nokkuð betri en í fyrra, en ógæftir hafa komið í veg fyrir að tonnin eru ekki fleiri.