Fiskistofa hafði ekki lagaheimild til eftirlits með dróna

Persónuvernd hefur úrskurða í máli er varðar myndbandsupptöku Fiskistofu með dróna.  Kvartað var yfir að Fiskistofa hafi fylgst með veiðum fiskiskips og notað við það dróna með myndavél.
Á heimasíðu Persónuverndar er fjallað um málefnið og úrskurður birtur.  Þar segir m.a.:
„Mál þetta varðar myndabandsupptöku úr dróna af fiskiskipinu […] er það var við veiðar skammt frá landi. Ljóst er að Fiskistofu var kunnugt um hvaða skip var um að ræða. Þá hafi Fiskistofu mátt vera ljóst að kvartandi var eini starfsmaður útgerðarinnar og eini eigandi hennar. Að þessu virtu og með hliðsjón af framangreindum ákvæðum telst það myndefni sem um ræðir í málinu vera persónugreinanlegt. Varðar mál þetta því vinnslu persónuupplýsinga sem fellur undir valdsvið Persónuverndar.
„Niðurstaða Persónuverndar var sú að vinnsla Fiskistofu á persónuupplýsingum kvartanda hafi ekki grundvallast á vinnsluheimild. Þá samrýmdist hún hvorki meginreglu persónuverndarlaganna um gagnsæi né reglum um fræðsluskyldu.