Rúm þúsund tonn á fjórum dögum

Alls hafa veiðst 1.072 af þorski á fyrstu fjórum dögum strandveiða eða að meðaltali 268 tonn á dag.  Bátunum fjölgar með degi hverjum, en 535 bátar hafa nú hafið veiðar.
Báðar þessar tölur eru mun hærri en árið 2021 sem er næst því sem nú er.  Bátarnir voru þá 287 og þorskafli þeirra 674 tonn.

Fiskmarkaðir – óslægður þorskur á fyrstu 4 dögum strandveiða
Handfæri 2023 2022 2021 2020 2019 2018
Verð 434 Kr/kg  380 Kr/kg  249 Kr/kg  229 Kr/kg  245 Kr/kg  194 Kr/kg 
Magn 984 Tonn  459 Tonn  653 Tonn  438 Tonn  593 Tonn  522 Tonn