Samstöðufundur á Patró

 
Af tilefni frumsýningar SKULDAR á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg var efnt til samstöðufundar meðal strandveiðisjómanna.   Fundurinn var afar vel sóttur og eindrægni meðal fundarmanna.  
Gestir fundarins voru forystumenn Landssambands smábátaeigenda og Strandveiðifélags Íslands.

IMG_4509.png

 
Á fundinum var sú staða sem upp er komin varðandi strandveiðar rædd í þaula.  Fréttir sagðar og mál krufin.  
 
Í lok fundar var eftirfarandi samþykkt.
 
Samstöðufundur strandveiðisjómanna haldinn á Patreksfirði 27. maí 2023 lýsir yfir þakklæti sínu til þjóðarinnar fyrir þann stuðning sem hún hefur sýnt strandveiðum og fram kom í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.  Atvinnugrein þar sem þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar vilja að verði efld, á ekkert annað skilið en viðunandi starfsskilyrði.  

IMG_4510.png

 
Fundurinn skorar á hæstvirtan matvælaráðherra, Atvinnuveganefnd Alþingis og þingheim allan að tryggja strandveiðar á yfirstandandi sumri þannig að jafnmargir veiðidagar verði í öllum landshlutum.  
 
Samstaða er meðal strandveiðisjómanna að gefa eftir 4 veiðidaga á yfirstandandi vertíð gegn því að tryggðar verði veiðar í 11 daga í hverjum mánuði;  maí – ágúst.

230530 logo_LS á vef.jpg
Screenshot 2023-05-30 at 21.40.19.png