Fjöldi báta með leyfi til strandveiða er nú orðinn sá sami og hann varð á síðasta ári. 712 bátar og hafa 665 þeirra hafið veiðar. Í maí 2022 höfðu 643 bátar fengið leyfi og 608 hafið veiðar. Það stefnir því í metþátttöku.
Veiðarnar hófust að miklum krafti, góðar gæftir og sá guli lét sig ekki vanta. Síðustu tvær vikurnar brældi hins vegar og gerði mönnum erfitt um vik að sækja, sérstaklega á svæði B og D. Einna skást var veðrið á svæði C.
10. maí skilaði mestum þorskafla í mánuðinum 419 tonnum. Þrír dagar skiluðu innan við hundrað tonnum. Meðaltal í mánuðinum var 218 tonn, en í fyrra skilaði maí 194 tonnum.
Hér má sjá þorskafla á dag á hverju svæði: Daglegar uppfærslur.pdf
Þorskafli í maí jókst um 6% milli ára um 198 tonn og stóð í 3.491 tonni nú um mánaðamótin. Það jafngildir að búið er að veiða um 35% af því sem ætlað er til strandveiða á þessu ári.
Um helmingur strandveiðibáta gerir út á svæði A. Minna hefur fiskast af þorski á svæðum A og B, en á svæðum C og D hefur afli aukist.