Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir fiskveiðiárið 2023/2024 var kynnt fyrr í dag.
Stofnunin leggur til að þorskafli verði aukinn um 2 463 tonn. 1,2% aukning þegar sjórinn er fullur af þorski veldur verulegum vonbrigðum. Aukningin ekki í takt við upplifun sjómanna og kemur því verulega á óvart.
Ýsa
Ráðgjöf í ýsu er hins vegar í takt við reynslu sjómanna, 23% aukning. Leyfilegur heildarafli aukinn um 14 196 tonn.
Taflan sýnir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir fiskveiðiárið 2023/2024 og yfirstandandi ár.