Stjórn LS – ráðherra tryggi strandveiðar til ágústloka

 
 
Stjórn Landssambands smábátaeigenda hefur sent Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra áskorun um auknar veiðiheimildir til strandveiða.
 
 
Screenshot 2023-07-10 at 15.44.25.png
 
Stjórn LS skorar á matvælaráðherra að endurskoða ákvörðun sína er varðar beiðni LS um auknar veiðiheimildir til strandveiða.  Vísar stjórnin m.a. til mikilvægi þeirra og hins mikla áhuga sem strandveiðum er sýndur.  Þetta á jafnt við sjómenn, fiskkaupendur, vinnsluaðila og eftirspurn frá mörkuðum.  Strandveiðar geta á þann hátt brúað það tímabil sem stóru fyrirtækin loka vegna sumarleyfa fram að næsta fiskveiðiári.
 
Stjórn LS minnir á að engin fordæmi eru fyrir því að ekki hafi verið bætt við aflaheimildum til
strandveiða þegar sambærileg staða hefur komið upp.  
 
 
Í svari Matvælaráðuneytisins 6. júlí sl. við erindi LS segir að „ráðuneytið hafi ekki lagaheimild til að fallast á fyrrgreint erindi sambandsins samkvæmt þeim málflutningi sem þar kemur fram.
Stjórn LS harmar þá niðurstöðu, en bendir á að ákvæði um magn aflaheimilda til byggðakvóta eru ákveðnar í reglugerð.  Heimildir þessar hafa ár eftir ár ekki verið að fullu nýttar.  Að óbreyttu verður yfirstandandi fiskveiðiár engin undantekning.  Breyting á reglugerð eins og gerðar hafa verið á undanförnum árum kæmi þannig í veg fyrir ótímabæra stöðvun strandveiða.
 
 
Stjórn LS vekur athygli ráðherra á að veiðiheimildir til VS-afla í þorski hafa ekki verið fullnýttar á undanförnum árum og verða það ekki á yfirstandandi fiskveiðiári.  Strandveiðar til ágústloka leiða því ekki til þess að afli verði umfram það sem ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kveður á um.
 
 
Stjórn LS minnir á að samkvæmt ákvæði laga um stjórn fiskveiða er hverju skipi heimilt að stunda strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar mánuðina maí, júní, júlí og ágúst.
Jafnframt að „Á hverju fiskveiðiári er ráðherra heimilt að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski skv. 5. mgr. 8. gr. sem nýtt skal til veiða með handfærum á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst samkvæmt sérstökum leyfum Fiskistofu.”  Aflamagn sem tiltekið er í reglugerð sem ráðherra getur breytt.
 
Með skírskotun til þessa er það óásættanlegt að strandveiðar standi einungis yfir í hluta tímabilsins.
 
 
Það er skoðun stjórnar LS að það sem hér hefur verið tilgreint sé í öllu falli nægjanlegt til að verða við áskorun LS.  Tryggja jafnan rétt allra byggðarlaga landsins í strandveiðum og koma í veg fyrir atvinnumissi þúsund einstaklinga sem snerta mun þrisvar sinnum fleiri. 
 
 
Frá því tækni í miðlun upplýsinga gegnum, Facebook, tölvupósta og heimasíður hóf innreið sína hefur aldrei ríkt jafnmikill samhljómur í skoðunum sjómanna um ástand þorskstofnsins.  Þar skiptir engu hvort spurningu þess efnis sé beint til togarasjómanna eða sjómanna á smábátum, svör eru öll á þann veg að það sé þorskur um allan sjó.
 
Við endurmat Hafrannsóknastofnunar í mars sl. á stærð viðmiðunarstofns þorsks fyrir árið 2022 reyndist hann rúmum 7% stærri en áætlað hafði verið ári fyrr.  Stjórn LS telur mælinguna samsvara upplifun sjómanna og séu skýr skilaboð um vanveiði sem hægt er að koma í veg fyrir með auknum veiðum.  
 
 
Að lokum vill stjórn LS benda á þá staðreynd að strandveiðimenn eru ævinlega látnir mæta afgangi þegar kemur að úthlutun veiðiheimilda.  Það er nöturlegt í ljósi þess að
strandveiðikerfið er eini glugginn í fiskveiðikerfinu þar sem einstaklingum gefst færi á því að reyna fyrir sér við fiskveiðar í atvinnuskyni, án þess að þurfa að kaupa eða leigja veiðiheimildir á verðum sem fæstir ráða við og eru í þokkabót ófáanlegar.  
 
Strandveiðikerfið var sett á fót í kjölfar úrskurðar frá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007.  Það er löngu kominn tími til að ganga þannig frá málinu að sómi sé að.
 

230710 logo_LS á vef.jpg