Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing frá Fiskistofu um stöðvun strandveiða. Frá og með morgundeginum 12. júlí eru strandveiðar bannaðar.
Dagurinn í dag 11. júlí var því lokadagur strandveiða í ár.
Myndin er af Pétri Ólafssyni á Garpi RE við löndun í Grindavík í dag. Góður róður 1,6 tonn, skammturinn og ufsi.