Grásleppuvertíðin framlengd

 
Birt hefur verið í Stjórnartíðindum breyting á reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2023.
Með henni verður heimilt að stunda veiðar í innanverðum Breiðafirði til og með 31. ágúst.
 
Áður hafa verið gerðar þrjár breytingar á upphaflegri reglugerð.  Dögum var fjölgað úr 25 í 35 og síðar í 45.  Jafnframt var veiðitímabil lengt.  Í stað þess að lokadagur væri 30. júní var ákveðið að hann verði 12. ágúst á öllum svæðum.  
 
 
Alls hafa grásleppubátar nú veitt 3.610 tonn, en á sama tíma í fyrra var veiðin 4.121 tonn.  LS áætlar að verð hafi hækkað um 40% frá í fyrra.  
 
Þrátt fyrir að vertíðin hafi verið lengd er ólíklegt að takist að veiða leyfilegt magn 4.411 tonn. 
Screenshot 2023-07-18 at 17.40.46.png