Byggðaráð Skagafjarðar – skyndileg stöðvun ólíðandi

Á fundi Byggðaráðs Skagafjarðar sem haldinn var í gær, 16. ágúst, var eftirfarandi samþykkt:
Lögð fram ályktun Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar, um stöðvun strandveiða 2023. 

Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir með Drangey – smábátafélagi Skagafjarðar, að ólíðandi er að veiðitími sé með skyndilegri stöðvun tekinn af strandveiðisjómönnum á Norðurlandi þriðja árið í röð vegna þess að potturinn er búinn áður en verðmætasti fiskurinn kemur norður fyrir land. Það er grundvallaratriði að jafnrétti verði aukið á milli byggðarlaga, tækifæri jöfnuð til að sækja í þann heildarpott sem úthlutað er til strandveiða og takmörkuðum gæðum þannig skipt á réttlátari hátt á milli svæða en nú er. Mikilvægt er að Alþingi endurskoði núverandi fyrirkomulag með framangreint í að markmiði.



Screenshot 2023-08-17 at 22.20.30.png