Á miðvikudaginn (13. september) fer fram áhugaverð ráðstefna í Hörpu þar sem fjallað verður um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum.
Á ráðstefnunni munu margir helstu sérfræðingar Norðurlandanna í sviði sjálfbærni og orkuskipta í sjávarútvegi halda framsögur, og verður þar fjallað um viðfangsefnið frá mörgum hliðum.
Sérstaklega verður áhugavert fyrir smábátaeigendur að sjá eftirfarandi kynningar:
• Dr. Friederike Ziegler frá RISE í Svíþjóð mun kynna hvernig Evrópusambandið hyggst leggja áherslu á samdrátt í CO2 losun frá sjávarútvegi, en þar hljóta smábátaveiðar með lítið kolefnisspor að vera í lykilhlutverki.
• Ditte Stiler frá Norrænum orkurannsóknum mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á norðurlöndunum í orkuskiptum fiskiskipa, þar á meðal smábáta.
• Dr. Ole Ritzau Eignaard frá DTU í Danmörku mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á botnraski við togveiðar og það kolefni sem leysist úr læðingi við að hreifa við hafsbotninum á þann hátt.
• Kaj Portin frá Wartsilla í Finnlandi mun fjalla um þróun fyrirtækisins á vélbúnaði fyrir nýja orkugjafa
LS hvetur félagsmenn til að mæta á ráðstefnuna, en aðgangur er ókeypis.
Dagskrá og skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar.