Tillögur svæðisfélaga LS til aðalfundar

 
 
Á undanförnum vikum hafa svæðisfélög LS haldið aðalfundi.  Ágæt mæting hefur verið á fundina og mikill hugur í þátttakendum.   Auk hefðbundinna aðalfundastarfa hafa félögin samþykkt tillögur til aðalfundar LS sem haldinn verður 12. og 13. október.  
Alls eru tillögurnar 133 og verða þær til umræðu og afgreiðslu tveggja nefnda:  Allsherjar- og sjávarútvegsnefndar.
 
Nefndafundir hefjast að lokinni setningu aðalfundarins LS og ávörpum í kjölfarið. 
 
 
 
LS_adalfundur_2023_2.jpg