Smábátar hafa haslað sér völl í veiðum á humri í Noregi. Hlutfall veiða með gildrum á móti toveiðum hefur snúist við á síðustu 15 árum. Úr því að vera með 20% hlut í að vera nú komið í 85% af humarveiðinni (tölur frá 25. október).
Ánægjulegt er að segja frá því að báturinn Bajas ber höfuð og herðar yfir aðra í magni, kominn með yfir 30 tonn. (Fiskerieblaðið)
Bajas Cleopatra 33 smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði.
Bajas er meðal 74 annarra smábáta sem landað hafa meira en einu tonni af humri á árinu. Greinilegt að humarveiðar eiga framtíð fyrir sér hjá smábátum í Noregi. Eftirspurn er fyrir hendi og verð gott, enda öllum afla frá þeim landað lifandi.
Aflahæstur meðal togara er Tenor, 35 metra langur rækju og bolfisktogari, með rúm 18 tonn.
Á aðalfundi LS voru gildruveiðar á humri ræddar og menn á einu máli um að ef tækist að rétta stofninn við ættu veiðar eingöngu að vera leyfðar með gildrum á smábátum.
Á fundinum voru trollveiðar á humri gagnrýndar, þær væru barn síns tíma. Ættu líklega sinn þátt í hvernig komið væri fyrir stofninum. Stofnstærðin væri komin undir varúðamörk og veiðar bannaðar.
Úr skýrslu Hafrannsóknastofnunar desember 2021