Klettur leggst gegn áframeldi í Eyjafirði

Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa undanfarnar vikur verið til umsagnar drög frá Matvælaráðuneytinu um stefnumótun lagareldis til ársins 2040.  Uppbygging og umgjörð lagareldis – stefna til ársins 2040.
Smábátafélagið Klettur sendi inn eftirfarandi umsögn um málefnið:
„Smábátafélagið Klettur leggst alfarið gegn hugmyndum um sjókvíaeldi á fiski í Eyjafirði.
Í gegnum tíðina hafa ýmsir aðilar gert alls konar tilraunir til eldis í Eyjafirði í skjóli veikra laga og reglna um þennan málaflokk. Eftir hefur setið gríðarlegt magn af rusli og drasli bæði í sjó og fjörum sem engin virtist vera gerður ábyrgur fyrir.
 
Þess fyrir utan hafa nýleg dæmi sannað að sjókvíaeldi á ekki rétt á sér. Þar er mikil hætta á umhverfismengun svo sem varðandi úrgang frá slíku eldi, slysasleppingum, laxalús og fleiri sjúkdómum sem fylgja fiskeldi í sjó.

Í Eyjafirði eru fengsæl fiskimið smábáta sem eru í hættu ef áframeldiskvíar í sjó verða leyfðar. Þá eru margar vinsælar veiðiár á svæðinu sem eru í hættu ef til slysasleppinga kemur líkt og oft hefur gerst.

Smábátafélagið Klettur hefur varnarþing frá Siglufirði í vestri, að Tjörnesi í austri og leggst alfarið gegn áframeldi að nokkrum toga í Eyjafirði.
 
Fyrir hönd Kletts smábátafélags
Andri Viðar Víglundsson formaður