Aflaverðmæti dregst saman um 3,9 milljarða

Hagstofan hefur birt tölur um afla og aflaverðmæti fyrir október.  Hér fylgja nokkrar upplýsingar sem LS hefur unnið upp úr tölunum.

Þorskafli á fyrstu tveim mánuðum fiskveiðiársins hefur dregist saman um 4 644 tonn miðað við sama tímabil í fyrra sem jafngildir 11%.  Hvert kíló á tímabilinu skilaði 332 krónum það, er 13 krónum lækkun milli ára.  

Ýsuafli er nánast óbreyttur milli ára, samanlagt í september og október um 14 þúsund tonn.  Þriðjungs verðlækkun hefur hins vegar orðið á ýsu.  Í fyrra var meðalverði 341 kr, en í ára fengust aðeins 229 krónur fyrir kílóið.  Lækkunin hefur leitt til þess að aflaverðmæti dróst saman um 1,5 milljarð á tímabilinu.  

Heildaraflaverðmæti á fiskveiðiárinu í lok október nam 25,3 milljörðum en það er um fjórum milljörðum lægra en í fyrra sem jafngildir 13,4%.

Eins og undanfarin þrjú ár er þorskur um helmingur af heildaraflaverðmætinu, um 12,3 milljarðar, 14,5% lækkun milli ára.  

240112 logo_LS á vef.jpg