Grásleppa sem meðafli

Fiskistofa minnir á að skip sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar, eiga að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin.

Stofnunin hvetur því áhafnir fiskiskipa til að virða ákvæði í 2. málsliðar 3. greinar reglugerðar um nýtingu afla og aukaafurða.

„Skipum sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar samkvæmt sérstöku leyfi Fiskistofu, er skylt að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin.“

Fiskistofa mun bregðast við ef skip landa ítrekað óeðlilegu magni af grásleppu, enda er ljóst að megnið af grásleppu er lifandi í þorskanetum sem dreginn eru með reglubundnum hætti.