Strandveiðar 2024 hófust í dag. Veiðarnar eru þær 16. í samfelldri röð, hófust 28. júní 2009. Voru það ár leyfðar í tilraunaskyni en lögfestar ári síðar.
Eins og undanfarin ár er mikill áhugi fyrir veiðunum. Fiskistofa hefur úthlutað 552 bátum leyfum, en á sama tíma í fyrra voru leyfin 516.
Taflan sýnir skiptingu leyfa eftir svæðum.
Svæði 2024 2023 A 288 273 B 84 78 C 47 51 D 133 114 Samtals 552 516
Útgefin leyfi nú 36 fleiri en á sama tíma í fyrra.
Gott hljóð er í sjómönnum sem haft hafa samband við skrifstofu LS á þessum fyrsta degi strandveiða í ár. Nægur fiskur á miðunum og almenn ánægja með að komast á sjó eftir alltof langt stopp.
Myndbrot frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni, sýnir Ljúf BA-43 koma inn til löndunar á Patreksfirði um tíuleytið í morgun.
