Í gær kom út Agga öryggis-app sérstaklega hannað fyrir smábátasjómenn. Appið hefur verið í þróun síðastliðið ár í samvinnu Öldu öryggi, Landssambands smábátaeigenda og Samgöngustofu. Appið auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála hjá smábátaeigendum á stafrænan máta.
Öggu-appið er einfalt í notkun og gefur sjómönnum aðgengi að öllum upplýsingum er varða öryggismál á einum stað. LS hvetur alla þá sem sækja sjóinn á yfirstandandi strandveiðitímabili til að sækja appið. Hann heldur utan um og minnir á nauðsynlega þætti.
Agga fæst frítt þar sem ætlunin er að ná til allra smábátasjómanna. Þannig getur þróunin haldið áfram þar sem markmiðið er fullkomið öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta sem yrði fyrirmynd á heimsvísu.













