Aðalfundur Kletts

Klettur – félag smábátaeigenda Fjallabyggð – Tjörnes heldur aðalfund næstkomandi fimmtudag 12. september.

Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Strikinu á Akureyri, Skipagötu 14, 5. hæð og hefst kl 15:00.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu fulltrúar LS mæta á fundinn.

Formaður Kletts er Andri Viðar Víglundsson