Landssamband smábátaeigenda og Strandveiðifélag Íslands tóku höndum saman fyrr á árinu og ákváðu að útbúa kynningarefni um strandveiðar. Til verksins var ráðin Rut Sigurðardóttir kvikmyndagerðamaður og trillukarl.
Upptaka fór fram á síðastliðnu sumri og var hluti efnisins frumsýndur á 40. aðalfundi LS 17. október.
Smábátaeigendur, velunnarar og aðrir lesendur heimasíðunnar eru beðnir um að liggja ekki á liði sínu, dreifa efninu sem víðast og þá sérstaklega til frambjóðenda til Alþingis 2024.
Rétt að minna aðila á eftirfylgni, ræða efnið og svara spurningum sem kunna að vakna um Strandveiðar. Jafnframt að leita svara við eftirfarandi:
Hver er afstaða þín og þíns flokks um að auka veiðiheimildir til strandveiða?
Getur atvinnugreinin, Strandveiðar, treyst á stuðning þinn og þíns flokks um að tryggja allt að 12 veiðidaga í mánuði, tímabilið maí – ágúst? “
Arnarstapi Myndböndin