Þann 5. desember 1985 var Landssamband smábátaeigenda stofnað. 39. afmælisdagur LS í dag.
Við stofnun LS var afli smábáta um 20 þúsund tonn.
Á síðasta fiskveiðiári veiddu smábátar 78 þúsund tonn sem skilaði 29,9 milljörðum í aflaverðmæti og útflutningsverðmæti var tvöföld sú upphæð.
1. janúar 1991 voru allir smábátar 6 brl. og stærri kvótasettir (950 alls). Aðrir smábátar (1.100) fengu aðlögunartíma til 1. september 1994 að ávinna sér aflaheimildir til kvóta þar sem hlutdeild þeirra var 2,18% – krókabátar.
1. september 2024 var aflahlutdeild krókabáta í þorski 17,5%. Til viðbótar kemur afli strandveiðibáta á sl. sumri 11.885 tonn. Alls voru smábátar því með 22,9% af heildarþorskafla fiskveiðiársins 2023/2024.
Til hamingju með daginn.