Almanak LS 2025

Félagsmönnum hefur verið sent almanak LS 2025. Það berst með Póstinum í dag og næstu daga.  

Auk almennra upplýsinga sem tilheyra almanaki eru skilaboð stílaðar til smábátaeigenda. Árdegisflóð, stofndagar svæðisfélaga LS, dagsetningar aðalfunda þeirra, ásamt fleiru.

Hönnuður dagatalsins er og hefur verið frá upphafi Bjarki Guðmundsson. Ljósmyndari er Erlendur Guðmundsson.  Þeim er hér með þakkað fyrir vel unnin störf.  

Almanakið hefur verið gefið út frá árinu 2003 og er því 2025 það 23. í röðinni.

Að vanda prýða almanakið uppskriftir af girnilegum fiskréttum fyrir hvern mánuð, sem smábátaeigendur deila.   

Fyrsta uppskrift ársins er „Mangó Chutney fiskur“ sem Halldóra Kristín Unnarsdóttir (Dóra Unnars) á Andra SH frá Rifi, býður upp á.