Eins og fram kom hér á síðunni hefur Fiskistofa birt upplýsingar um aflahlutdeild í grásleppu.
LS hefur reiknað út hvaða aflamark hver og einn bátur fær á komandi vertíð ef leyfilegur heildarafli verður óbreyttur frá síðustu vertíð – 4.030 tonn. Við útreikninga er dregið frá 5,3% eins og lög gera ráð fyrir, 3.816 tonn koma því til úthlutunar.
Alls fá 260 bátar aflamark allt frá 30 kg upp í 57,2 tonn.
Skipting eftir svæðum er eftirfarandi:
Suðurland-Faxaflói | 10,5% | 401 Tonn | 38 Bátar |
Breiðafjörður–Vestfirðir | 31,6% | 1.207 Tonn | 75 Bátar |
Húnaflói | 16,8% | 640 Tonn | 34 Bátar |
Norðurland | 29,9% | 1.140 Tonn | 78 Bátar |
Austurland | 11,2% | 428 Tonn | 35 Bátar |
Hver fær hvað?
Verður lögum breytt?
LS átti fund með Hönnu Katrínu Friðriksson sl. miðvikudag 15. janúar. Þar fór félagið þess á leit við ráðherra að gerð yrði breyting á lögum um veiðistjórn á grásleppu. Horfið yrði frá kvótasetningu til veiðistjórnar sem gilt hefði síðustu þrjá áratugi með góðum árangri.
- Veiðum verði stjórnað með veiðileyfum sem gildi í ákveðinn fjölda veiðidaga.
- Veiðidagur telji þegar net eru í sjó daglangt.
- Heimilt verði að sameina leyfi, enda leiði það ekki til aukins sóknarþunga.
Ráðherra hefur nú beiðni LS til skoðunar.