Í Samráðsgátt stjórnvalda hefur verið opnað fyrir samráð um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar nr. 460/2024.
Óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um drög reglugerðarinnar.
Umsagnarfrestur er til og með 20. mars nk.
Í drögum að reglugerð eru lagðar fram þrjár breytingar sem varða eftirtalda þætti:
1. Umsóknarfrestur. Lagt er til að skylt verði að sækja um leyfi til strandveiða fyrir tiltekið tímamark, en framkvæmdin hefur verið að heimilt hefur verið að sækja um eftir að strandveiðitímabil hefst. Lagt er til að sækja þurfi um leyfi til strandveiða fyrir 15. apríl og ekki verið heimilt að sækja um strandveiðileyfi eftir það tímamark. Þó verði umsækjanda heimilt að tilgreina í umsókn upphafsdag strandveiða, ef t.d. umsækjandi er að ljúka veiðum í öðrum kerfum. Verði breytingin staðfest mun fjöldi báta sem stundar strandveiðar liggja fyrir áður en strandveiðitímabilið hefst. Mun þetta fela í sér aukinn fyrirsjáanleika og einföldun í framkvæmd.
2. Skilyrði um eignarhald. Lagt er til að sett verði frekari skilyrði um eignarhald lögaðila sem fá strandveiðileyfi. Í drögunum er lagt til að eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á strandveiðitímabilinu skuli eiga að minnsta kosti meirihluta í lögaðilanum. Þannig getur strandveiðiskip í eigu lögaðila ekki haldið úr höfn nema sá sem á meira en 50% í lögaðila sé lögformlega skráður um borð í skip í gegnum lögskráningarkerfi sjómanna skv. lögum um áhafnir, nr. 82/2020.
3. Skil á aflaupplýsingum fyrir löndun. Lagt er til að skipstjóra strandveiðiskips verði skv. reglugerð skylt að senda aflaupplýsingar stafrænt til Fiskistofu áður en skipi er lagt að bryggju í löndunarhöfn að lokinni veiðiferð skv. 4. mgr. 9. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996 sbr. ákvæði reglugerðar um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga.
Í drögum reglugerðarinnar er gert ráð fyrir að breytingin öðlist gildi við staðfestingu, svo unnt sé að ljúka undirbúningi fyrir komandi strandveiðitímabil.