Hafrannsóknastofnun hefur birt niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska í mars á vísitölu grásleppu. „Vísitala þessa árs var sú næst lægsta síðan mælingar hófust 1985“ segir á heimasíðu stofnunarinnar. Stofnunin ráðleggur að leyfilegur heildarafli fari ekki umfram 2.760 tonn. Á síðasta ári voru veiðiheimildir 46% hærri – 4.030 tonn.
Samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar verður upphafskvóti næsta árs aðeins 662 tonn en í ár 1.216 tonn.
Sá mikli niðurskurður sem Hafrannsóknastofnun leggur til kemur á óvart ef miðað er við fréttir af miðunum.
Sjómenn á togurum hafa mikið verið varir við grásleppu frá áramótum. Þá hefur veiði grásleppubáta á þessum tíma árs gengið mun betur en undanfarin ár. „Ég hef ekki upplifað aðra eins veiði á þessum tíma sagði Ingólfur Árnason skipstjóri á Ásdísi ÞH, dregin voru 78 net þriggja nátta, aflinn 8 tonn í tveimur löndunum. Alls 2.625 grásleppur.
Alls hafa veiðst frá áramótum 467 tonn af grásleppu, þar af 93 tonn í botnvörpu og 329 tonn í grásleppunet. Á sama tímabili í fyrra voru tölurnar 246 tonn, 46 tonn í botnvörpu og 181 tonn í grásleppunet. Veiði í grásleppunet er þó varla samanburðarhæf sökum ólíkra reglna um veiðistjórn.