Strandveiðireglugerðin undirrituð

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar og sent til birtingar í Stjórnartíðindum.  Þar mun hún birtast á mánudaginn og öðlast þá lögformlegt gildi.  

Reglugerðin kveður m.a. á um að „um borð í hverri strandveiðiferð skal vera einn einstaklingur sem er lögskráður á skipið og á að lágmarki beint eða óbeint í gegnum lögaðila, meira en 50% eignarhlut í skipinu. Eignarhald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu og eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.“

Jafnframt er eftirfarandi ákvæði að finna í reglugerðinni er varðar eignarhald: „Eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á standveiðitímabilinu skv. 1. mgr. 2. gr. skal eiga meira en 50% í lögaðilanum.“

Samkvæmt reglugerðinni verða umsóknir um leyfi til strandveiða að „berast Fiskistofu fyrir 22. apríl ár hvert og skal í umsókn tilgreina upphafsdag strandveiða innan strandveiðitímabils“.

Það eru LS vonbrigði að ráðherra hafi ekki orðið við ósk félagsins um að eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á standveiðitímabilinu skuli heimilt að eiga jafnan hlut á við aðra eigendur í lögaðilanum, í stað meirihluta.  

Jafnframt óskaði LS eftir að tillögur um breytt eignarhald lögaðila myndi ekki gilda um báta í sameiginlegri eigu foreldra, barna, tengdabarna og barnabarna.  Ekki síst þar sem krafa um hertar reglur tengdar eignarhaldi væru þeim hóp óviðkomandi.