Fyrsti dagur strandveiða skilaði 240 tonnum 

Alls 351 bátur hóf veiðar á fyrsta degi strandveiða.  Víðast hvar aflaðist vel að undanskildum Faxaflóa þar sem þorskurinn skilaði sér ekki á önglana.

Rúmur helmingur báta sem fengið hafa leyfi á svæði A og B hófu veiðar í dag, rúm 40% á svæði sé og fjórðungur á svæði D.  

Mestur þorskafli á bát var á svæði C 737 kg, skammt þar á eftir voru bátar á svæði A með 725 kg.

Alls 167 tonn af óslægðum þorski veiddum á handfæri voru í dag seld á fiskmörkuðum, meðalverð pr. kíló 480 Kr.  

Taflan sýnir afrakstur dagsins.