Að loknum 9. degi strandveiða, 19. maí, er þorskafli rúmum fjórðungi minni en í fyrra. Sjómenn telja þó ekki að það sé minna af þorski á slóðinni, heldur liggja ástæðurnar m.a. í að menn eru ekki eins gírugir í að ná skammtinum þ.s. 48 dagar eru tryggðir til veiðanna.
Hér eru nokkrar tölur um strandveiðar þ.s. borin eru saman þrjú ár – staðan tekin að loknum níunda degi

Mestur þorskafli á dag var í gær 19. maí 379 tonn, 422 tonn mestur 2024 og 419 tonn árið 2023.

Súlurnar hér að neðan sýna hver veiðin er á einstökum svæðum fyrstu níu daga strandveiða, kg í róðri.
