Upphæð veiðigjalds í þorski taki mið af gerð veiðarfæra

LS var meðal 47 aðila sem sendu umsögn um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni).  Í umsögninni kveður nokkuð við annan tón en í öðrum umsögnum, þar sem LS leggur til að upphæð afsláttar taki mið af umhverfisvænleika veiðarfæra og ferskleika aflans.

„Landssamband smábátaeigenda (LS) leggur höfuðáherslu á að frumvarpið tryggi sanngjarnari gjaldtöku gagnvart minni útgerðum, hvetji til umhverfisvænni veiðarfæranotkunar og spyrni gegn frekari samþjöppun aflaheimilda.  Í umsögn þessari eru settar fram tillögur sem miða að því að tryggja þessi markmið.“

Í umsögn LS er bent á að Hafrannsóknastofnun hafi lýst því yfir að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að hlutast til um það í hvaða veiðarfæri veitt er, heldur að gefa stjórnvöldum ráðgjöf um heildarafla.   

Krafa LS er 55% afsláttur:

„LS lítur á frumvarpið sem kærkomið tækifæri stjórnvalda til að efla umhverfisvænar veiðar og auka magn þess fisks sem veiddur er af dagróðrabátum.  Beina sókn í þorsk frá togveiðarfærum til kyrrstæðra veiðarfæra neta, línu- og handfæra.  LS fer þess á leit að 55% afsláttur verði á veiðigjaldi fyrir þorsk sem veiddur er af dagróðrabátum í framangreind veiðarfæri.“

Sjá umsögn LS