Útbýtt hefur verið á Alþingi frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 (strandveiðar).
Frumvarpið felur m.a. í sér eftirfarandi:
- Stöðvunarákvæði Fiskistofu sett á ís í sumar.
- Gjald fyrir ólögmætan afla skal nema andvirði hans í stað meðalverðs á fiskmörkuðum á þeim stað og því tímabili þegar hann barst að landi.
- Brot gegn skilyrðum um eignarhald lögaðila, eignarhald báta og lögskráning varða sviptingu veiðileyfis út strandveiðitímabilið.
- Ítrekuð brot fyrir umframafla varða sviptingu veiðileyfis
- Afli í strandveiðum sem fer umfram núverandi aflamagn skal dregið frá árlegu heildaraflamarki.
Athygli vekur að í greinargerð með frumvarpinu er að finna texta sem ekkert á skylt við þær breytingar sem það boðar.
„Til að unnt sé að tryggja 48 veiðidaga kann að þurfa að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð.“
Frumvarpið verður á dagskrá þingsins á næstu dögum og er ætlunin að það verði að lögum fyrir þinglok í sumar.