Atvinnuvegaráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla.
Í reglugerðinni er kveðið á um að vigtun strandveiðiafla skuli lokið á hafnarvog. Vigtarmanni er heimilt að draga allt að 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður.
Reglugerðin var birt í Stjórnartíðindum í dag og hefur þar með tekið gildi.
Samþykktir aðalfundar LS um vigtun eru eftirfarandi:
Að endurvigtun verði aflögð og allur afli endanlega vigtaður á hafnarvog (2023)
Að allur afli sé endanlega vigtaður á hafnarvog í löndunarhöfn nema þegar landað er á fiskmarkað þar sem fiskur er flokkaður og vigtaður af löggiltum hafnarvigtarmanni. (2022)