Að loknum 20. degi strandveiða sem var í gær 10. júní kom í ljós að þorskafli hafði í fyrsta skipti á tímabilinu farið yfir fjögurhundruð tonn. Alls 634 bátar voru á sjó og lönduðu 416 tonnum af þorski. Það er 19 tonnum meira en 21. maí, en þann dag voru 607 bátar á strandveiðum.
Töflur sem hér fylgja sýna þróunina.

Í stuttu máli er munurinn milli ára þessi, þegar fjallað er um afla er átt við þorsk:
Þorskafli 13% samdráttur

Afli í hverju róðri dregst saman á öllum svæðum – 9% að meðaltali

Nýting daga lækkar úr 52% í 48%

Afli að meðaltali á hvern dag eykst á svæði B en dregst saman á öðrum svæðum. Meðaltalið fer úr 261 í 228 tonn – 12,7 lækkun

Fjöldi báta sem hafa hafið veiðar eru nú orðnir einum fleiri og allt tímabilið í fyrra. Fjölgum mest á svæði D um tæpan þriðjung, fækkun um 21 á svæði A

Veiðiferðir á svipuðu róli milli ára, fylgir nokkuð fjölda báta þó greinilegt að veður hefur haft áhrif þar á.

Afli að meðaltali á bát dregst saman á öllum svæðum að undanskildu svæði B.

Að lokum fylgir hér graf sem sýnir dagsafla í þorski.

Allar tölur eru unnar upp úr vef Fiskistofu.