Vel hefur gengið á strandveiðum síðustu tvær vikur. Báðar vikurnar gáfu þó aðeins þrjá daga hvor vegna rauðra daga, 17. júní og annan í hvítasunnu. Alls 2.436 tonn að meðaltali 406 tonn. Vikurnar tvær þar á undan einkenndust hins vegar af mikilli brælutíð þar sem samanlagður þorskafli var aðeins 1.174 tonn, 147 að meðaltali á dag.

Í lok þessarar viku stóð þorskaflinn í 6.573 tonnum, en það er 563 tonnum minna en eftir 25 daga á síðasta ári.

Alls hafa 781 aðili virkjað strandveiðileyfi og er það fjölgun um 42 báta. Flestir róa á svæði A, en þar hefur bátum þó fækkað milli ára. Mesta fjölgunin er hins vegar á svæði D þar 30% fleiri stunda nú veiðar en í fyrra.

Þorskafli hvers báts á degi hverjum hefur dregist saman um 7,4% milli ára, óverulega á svæði B, en um tæpan fimmtung á svæði D.


Gulli á Hvítá HF á leið í land með skammtinn í vikulokinn.
19. júní var metdagur það sem af er þessari vertíð. Alls 671 á sjó með 456 tonn af þorski, 680 kg af þorski að meðaltali á bát.