Aðalfundur Eldingar – félags smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum verður haldinn nk. sunnudag 21. september í Guðmundarbúð björgunarhúsinu á Ísafirði.
Fundurinn hefst kl 14:00.
Benedikt Bjarnason formaður Eldingar hvetur félagsmenn til að fjölmenna til fundar, fræðast og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda.
Dagskrá: Venjulega aðalfundarstörf og önnur mál.
Gestur fundarins verður Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður.